Betra seint en aldrei

Risinn er að vakna til vitundar um ábyrgð sína. Betra seint en aldrei. Sennilega þarf kirkjan fljótlega að standa á eigin fótum. Eins gott er fyrir kirkjunnar menn að bæta ímynd sína. Ég tel rétt að hafa sérstaka þjóðaratkvæðagreiðslu um samband ríkis og kirkju, sem gæti verið samhliða þjóðaratkvæði um nýja stjórnarskrá.
mbl.is Kirkjuþing samþykkir nefndina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ólýðræðislega aðför að kirkjunni. Fjöldi manns býður sig fram til stjórnlagaþings til þess eins að koma að sínum einkahugmyndum, aðskilnaði ríkis og kirkju. GAMLA Stjórnarskráin tryggir að hægt sé að skipta um sið, EF meirihluti landsmanna vill það, í ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU. Fjöldi frambjóðenda til Stjórnlagaþings vill bæði aðskilnað og losna við áhrif forseta, sem þýðir að það verður enginn að biðla til vilji þjóðin slíka atkvæðagreiðslu. Hvernig sem niðurstaðan verður er ólýðræðislegt að grípa frammi fyrir hendurnar á þjóðinni með þessum hætti og ákveða fyrir hana, án þjóðaratkvæðagreiðslu, að aðskilja ríki og kirkju. Það er ELÍTÍSMI! Og það án þess að eiginleg "elíta" komi til, en EKKI LÝÐRÆÐI! Stjórnlagaþing má ekki verða bara angi af alþingi og ólýðræðislega andanum sem ríkir þar, að grípa frammí fyrir hendurnar á fólki og vanvirða lýðræði þess. Þjóðin ræður sjálf hvort hún vill aðskilja ríki og kirkju, EKKI einhver sjálfskipuð elíta á Stjórnlagaþingi. Vilji hún það, er það lýðræðislegur réttur hennar, tryggður í gömlu stjórnarskránni. Vilji hún það ekki, þá er ekkert glæpsamlegt við að þjóð velji sinn sið sjálf. Við færum varla til Laos og myndu hneykslast gífurlega á Búddhismanum þar. Hópar eins og hópurinn á Facebook um að kjósa sérstaklega til stjórnlagaþings til að kjósa burt Þjóðkirkjuna eru dæmi um fáfræði og aðför gegn lýðræðinu. Þjóðin ræður sjálf! Stjórnlagaþing á ekki að vera hérna til að "ákveða fyrir fólkið", Alþingi hefur gengið nóg fram af þjóðinni með elítisma, bæði núverandi og fyrrverandi ríkisstjórn og þjóðin hefur fengið nóg af slíku! STÖNDUM VÖRÐ UM LÝÐRÆÐIÐ!

VÖRUMST ÚLFA Í SAUÐARGÆRU Á STJÓRNLAGAÞINGI (IP-tala skráð) 15.11.2010 kl. 08:59

2 Smámynd: Elín Erna Steinarsdóttir

Ég er sammála því að ekki eigi að endurskoða 62. greinina samhliða endurskoðun á stjórnkerfi, auðlindamálum, sjálfbærni, mannréttindum, upplýsingakafla, eftirliti o.s.frv. Ef vilji þjóðarinnar stendur til þess að aðskilja ríki og kirkju þarf að kjósa um það í sérstakri kosningu, en hvað vill fólk? Vill það einkavæða kirkjuna með öllum þeim menningarverðmætum sem þar eru fyrir hendi? Vill fólk halda í frídaga tengda kristinni trú ef jafnrétti trúarbragða á að vera algjört? Farsælast er að byrkja stjórnarskrárvinnuna á málum sem sameina þjóðina og varða lífsafkomu hennar til lengri tíma.

Elín Erna Steinarsdóttir, 15.11.2010 kl. 23:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband